Ensím Fitubrjótur 1L - Fyrir rotþrær, niðurföll og fitugildrur
Fitubrjóturinn er áhrifarík blanda örvera og ensíma sem mæta í rotþróna, niðurfallið og fitugildruna og brjóta þar niður uppsafnaða fitu, matarleifar og olíu ásamt því að eyða ólykt á náttúrulegan hátt. Efnið er lífrænt og inniheldur engin hættuleg ætandi efni og hefur því engin skaðleg áhrif á frárennsliskerfi né umhverfið.
Leiðbeiningar: Hristið vel. Hellið 500 ml í fitugildrur og látið fylgja dálítið vatn. Endurtakið daglega þar til gildran og lögnin er hrein. Hellið 50 ml í niðurföll og vaska einu sinni í viku til að viðhalda hreinum og lyktarlausum lögnum. Hellið 4 lítrum afefninu í 1600 lítra rotþró í upphafi. Aðlagið hlutföllin eftir stærð rotþróar. Viðhaldið styrk fitubrjótsins með 10% viðbótarskammti mánaðarlega.
Stærð: 1000ml, 5000ml |