Grettir sterki er
öflugur og mjög hraðvirkur stíflueyðir sem fer í gegnum vatnslagið og eyðir
lífrænum stíflum á svipstundu. Grettir sterki er frábær lausn við erfiðum stíflum
í lögnum en til að fyrirbyggja slík vandamál mælum við sérstaklega með
reglulegri notkun á Ensím Niðurfallshreinsi.
Leiðbeiningar:
Fjarlægið umframvatn, notið hlífðarfatnað, hanska og gleraugu og forðist að
anda að ykkur efninu. Hellið 300 ml hægt og varlega beint í niðurfallið, helst
með trekt. Látið standa í 5 mínútur og hellið svo köldu vatni í kjölfarið í
niðurfallið. Endurtakið eftir þörfum.