Fitubrjóturinn er
áhrifarík blanda örvera og ensíma sem mæta í rotþróna, niðurfallið og
fitugildruna og brjóta þar niður uppsafnaða fitu, matarleifar og olíu ásamt því
að eyða ólykt á náttúrulegan hátt. Efnið er lífrænt og inniheldur engin
hættuleg ætandi efni og hefur því engin skaðleg áhrif á frárennsliskerfi né
umhverfið.
Leiðbeiningar:
Hristið vel. Hellið 500 ml í fitugildrur og látið fylgja dálítið vatn.
Endurtakið daglega þar til gildran og lögnin er hrein. Hellið 50 ml í niðurföll
og vaska einu sinni í viku til að viðhalda hreinum og lyktarlausum lögnum.
Hellið 4 lítrum afefninu í 1600 lítra rotþró
í upphafi. Aðlagið hlutföllin eftir stærð rotþróar. Viðhaldið styrk
fitubrjótsins með 10% viðbótarskammti mánaðarlega.